...Lifðu einn dag í einu...

...Heiðrún Halldórsdóttir...

24.08.2006 15:04:15 / heidrun

nýtt blogg

Kominn með nýtt blogg...

www.heidrunhalldorsdottir.bloggar.is Allir að kíkja allir....:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 14:19:43 / heidrun

Fimmtudagur...

jæja gúddí malla það er bara að verða ansi langt síðan ég bloggaði síðast verð ég að segja allveg að verða 2 mánuðir en já það má nú segja að það sé margt búið að ske síðan þá, td. er ég flutt, búin að eiga afmæli, er að fara til Akureyrar um Verslunarmannahelgina, er að fara til Portúgals 22. júní og svona má lengi telja ég nenni bara ekki að blogga, það er sumar og þá á maður að vera að gera eitthvað annað!!!!! Hafið það gott... ég held ég bloggi ekki á næstunni því ég er net laus á nýja heimilinu mínu og er því að blogga í vinnunni... Hafið það gott:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 21:55:07 / heidrun

Þriðjudagur...

Jæja í dag er merkilegur dagur... Hann elskulegur faðir minn hefði orðið 53 ára í dag... Elsku pabbi minn hafðu það gott engillinn minn...


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 23:16:49 / heidrun

Mánudagur...

Okey, okey, okey ég skal blogga fyrir L.A faran...

En það er nú bara svo að það er ekki mikið að gerast hérna skal ég segja þér... Ég er bara búin að vera að vinna á pósthúsinu og fer síðan stundum á hótelið og vinn þar að kveldin... Og þess á milli bara fara hjemm og gera lítið... Síðan bíð ég bara og bíð fyrir framan Perlu og vonast til að kettlingarnir komi bráðum... Þessa helgina gerði ég svo bara ekkert nema var að vinna á sunnudagskveldið...

Jæja nenni ekki að blogga meira er að fara að drífa mig að sofa... Blogga á morgun:)

En verð að segja Guðrúnu eitt í viðbót... við erum kannski að fara að fá einn annan hvolp sem er sonur hans Kóps... hehe þá verða þeir orðnir 6...


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 17:54:55 / heidrun

Mánudagur-annar í Hvítasunnu

Jæja þá er komið að bloggi:)

Margt búið að ske síðan ég bloggaði síðast... Fór á ball á venus síðusu helgi og voru það snillingarnir í Úlrik sem að héldu stuðinu... Á fimmtudaginn byrjaði ég síðan að vinna á pósthúsinu sem er bara fínt sem komið er... Selja frímerki og eitthvað:)

Um þessa helgi sem er að líða er margt hægt að segja... á fimmtudaginn leit út fyrir að það væri ekkert að gerast og það myndi verða róleg helgi en nei það var nú ekki svo...

Föstudagur: Fór ég í matarboð hjá Sólrúnu með Kristínu Hebu og Steinunni.. Mjög gaman og kósí... Skelltum okkur svo á Dússa og það var voða fínt, svo skutlaði ég stelponum heim og fór svo með Svövu, síðan hófust slagsmál, löggan kom, við að njósna ásamt fleirum reyndar og enduðum svo í körfubolta og vorum í því til 6... Binni og Davíð unni fjandans leikinn með svindli:)

Laugardagur: Sofa, sofa, fór svo í sund með Krumma, fórum og fengum okkur ís, löbbuðum í skalló og svona og fórum svo hjemm... Síðan um kveldið þá kom óvænt útileg upp... Fannar og Binni voru búnir að tjalda í Húsafelli og ég fór í heimsókn:) Mjög gaman...

Sunnudagur: Vaknaði miggluð í tjaldi og var að fara með lillu syst á flugvöllinn... Þannig ég brunaði í BGN hitti mömmu og Guðrúnu.. Fórum svo með henni til Kef, og það var nú soldið erfitt að kveðja hana, en hún verður komin aftur eftir mánuð:) Síðan fórum við í fermingu og síðan heim og ég þurfti að keyra Hvalfjörðinn... Jæja síðan ákváðu ég, Fannar og Binni að fara að tjalda aftur... Og fórum upp í Brautartungu en við máttum ekki vera þar þannig að við fórum í Krosslaug nánar tiltekið, heitur drullupollur... Jæja tjölduðum þar og svo komu Svava, Davíð, Lóa, Hjalli, Tommi og Jón...Já þetta var mjög gaman:)

Að lokum það sem að var mest sagt þessa helgi var ... Ekkert... hehe


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 21:16:31 / heidrun

Fimmrudagur...

Jæja þá fer að líða að kosningum og ég ekki ennþá búin að gera upp hug minn um hvað ég á að kjósa.. já þetta er erfitt val hérna í Borgarnesi ... En valið stendur á milli B, D og L lista... Allir að segja hvað ég að kjósa.. Og líka hvaða nafn á að velja á nýja sveitafélagið...  

Borgarbyggð, Brákarbyggð, Mýrabyggð, Sveitarfélagið Borgarfjörður.

 

   B             D          L
listi Framsóknarflokks listi Sjálfstæðisflokks  listi Borgarlista
Sveinbjörn Eyjólfsson Björn Bjarki Þorsteinsson Finnbogi Rögnvaldsson

Jenný Lind Egilsdóttir

Torfi Jóhannesson Sigríður Björk Jónsd.
Finnbogi Leifsson Ingunn Alexandersdóttir Haukur Júlíusson
Sigríður Guðbjörg Bjanad Þórvör Embla Guðmundsd. Þór Þorsteinsson
Bergur Þorgeirsson Bernhard Þór Bernhard Ingibjörg Daníelsdóttir
Valdimar Sigurjónsson Jónína Erna Arnardóttir Sigurður Helgason
María Hrönn Kristjánsd Kristján Ágúst Magnússon Björk Harðardóttir
Guðbjörg S Sigurðard Heiðveig María Einarsd Hólmfríður Sveinsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir Dóra Erna Ásbjörnsdóttir Jóhannes Stefánsson
Kolbeinn Magnússon Magnús B. Jónsson Jóhanna Björnsdóttir
Sveinbjörg Stefánsdóttir Jóhanna Erla Jónsdóttir Þóra Geirlaug Jónsdóttir
Ólafur Sigvaldason Sigurður Gunnarsson Ragnheiður Einarsdóttir
Sigmar H. Gunnarsson Guðmundur S. Halldórss. Ragnar Finnur Sigurðs.
Dagný Sigurðardóttir Guðrún Hulda Pálmadóttir Anna Einarsdóttir
Erna Einarsdóttir Hjörtur Árnason Kristmar J. Ólafsson
Ólafur Guðmundsson Bergþór Kristleifsson Sóley Sigurþórsdóttir
Kolfinna Þ. Jóhannesd Ari Björnsdóttir Ásþór Ragnarsson
Þorvaldur T. Jónsson Helga Halldórsdóttir Guðbrandur Brynjúlfs.


 

Jæja annars er ég bara búin að hafa það glimrandi gott hérna í höfuðborginni hjá Guðna bró:) ætla nú svo að snú aftur á heimaslóðir á morgun.. Hafið það gott og allir að kommenta... ég minni svo aftur á myndirnar frá því um helgina;) http://spaces.msn.com/heidrunhalldorsdottir/




» 4 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 16:14:07 / heidrun

Miðvikudagur...

Jæja þá er maður bara í höfuðborginni...

Á mánudaginn þá fórum við ég, Fannar og Kristín Heba í heimsókn til Heiðu og lillu sem er reyndar búin að fá gullfallegt nafn sem passar vel við sæta stelpu en hún fékk nafnið Birta... Og ég er bara ekki frá því að hún sé alveg með fallegri börnum sem ég hef séð, hún er algjör rúsína... já ég missti mig alveg sko:)

Síðan á þriðjudaginn þá skellti ég mér bara í bæinn því mamma splæsti smá péning á mig til að ég geti verslað mér kannski smá;) Rosa góð sú gamla:) Fór síðan bara að hitta Katrínu í gær kveldi og það var rosa gaman, síðan í dag fór ég bara í ljós, kíkti ´smá í kringluna og fékk mér svo megaviku, þvílík heppni akkúrat þegar ég er...

Jæja nenni ekki meira hangsi...En þar sem að ég komst í GÓÐA nettengingu hjá Guðna þá skellti ég inn myndum frá því um helgina og líka úr sumarbústaða ferðinni í nóvember... Þannig nóg að skoða... Og ég setti ALLAR myndir sem teknar voru, líka þessar ljótu... hehe http://spaces.msn.com/heidrunhalldorsdottir/

Hafið það gott, sumarið að koma og ekkert sem hægt er að kvarta yfir:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 14:00:38 / heidrun

Mánudagur...

Ja hérna hér það er sko ár og eilífð síðan ég bloggaði....

En margt hefur nú gerst síðan þá...

Ég ætla nú að byrja á því að óska henni Heiðu sætu til hamingju með litlu prinsessuna sína sem kom í heiminn u 2 í gær dag:) Hún lét nú bíða smá eftir sér en kom þó að lokum þessi elska:)

Jæja næsta mál á dagskrá, hún Jóhanna Lóa er orðin 20 ára, hvorki meira ne minna.. Að því tilefni var tekin bústaður á leigu upp i Svignaskarði... við stöllur fórum þangað um miðjan dag á föstudaginn og byrjuðum að skreyta allt með bleiku, þar sem að þema kvöldsins var bleikt.. Svo mættu allar aðal vinkonurnar á svæðið og allar vorum við svo í bleiku og allt var vel heppnað og ógeðslega gaman, endaði með því að ég stökk í heita pottinn í fötonum og svona skemmtilegt:) hehe

Síðan á laugardaginn var bara farið í Bauluna og fengið sér borgara... Nú síðan var byrjað að djúsa aftur... Horfðum á Finnland vinna eurovision og svo var bara borðað, dansað og fullt af fólki kom að heimsækja Lóu:) Meðal annars xxxxxx... hehe já þetta var snilld...

Jæja á sunudags morgun var nú ekki eins fjörugt hljóð í fólkinu, þar sem að kofa hræsnið eins og einhver kallaði bústaðinn var í rúst, já í rúst... allt útum allt og meira að segja á veggjonum, en þar sem að við vorum flokkur af dugnaðar forkum skiptum við okkur niður og vorum búin að þrífa á einum og hálfum tíma:)

EN jamm síðan var bara farið aftur og fengið sér djúsí borgara í baulunni og svo haldið heim á leið, farið á framboðsfund til að ákveða hvað á að kjósa en ég komst nú reyndar ekki að niðurstöðu... og síðan heim í spádóm og svo sofa...

Jamm er bara í fríi núna og er bara að hangsa heima:) Ætla svo að fara í bæinn á morgun og hitta rassana:)

Jæja hafið það bara gott:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 16:25:17 / heidrun

Miðvikudagur...

Jæja langt er nú liðið síðan ég bloggaði síðast... ég er bara ekki að nenni því, en þar sem Heiða rekur á eftir mér þá ætla ég að gera svona punkta blogg...

  • Fór á ball á Venus á laug og það var frekar súrt ball..
  • Ég er að fara að hætta 19 á hótelinu...
  • Er að fara að vinna á pósthúsinu...
  • Lóa á afmæli 19 mai og þá er ammæli og læti í sumarbústað...
  • Útskrift hjá Laufeyu Oddnýu 20...
  • Svo er ég að fara í vist til Reykjavímur 22, 23 og 24, og bara að hangsa, kaupa föt, fara til spámiðils, fara í andlits nudd hjá Mallý, fara í ljós og bara gera eikkað geggjað skemmtó með stelpunum og svona gaman:)
  • Heiða bara að fara að eiga litla barnið sitt bráðum.. vei vei...
  • Gunnar var að kaupa sér nýjan bíl...

Jæja nenni þessu bulli ekki mínútunni legnur...

Kem með öflugt blogg von bráðar:):):)


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 20:37:57 / heidrun

Þriðjudagur...

Jæja ég nenni ekki að blogga svona hefðbundið, svo ég set bara svona sneðugt sem ég stal af síðunni hennar Ásrúnar sem er svona soldið snedí... Annars bara allt gott að frétta svona... Og svo ætla ég líka að gera svona núverandi dæmi:)

At this moment there are 6,470,818,671 people in the world.
Some are running scared.
Some are coming home.
Some tell lies to make it through the day.
Others are just not facing the truth.
Some are evil men, at war with good.
And some are good, struggling with evil.
Six billion people in the world,
six billion souls.
And sometimes
…all you need is one.

Núverandi föt? Teinóttar buxur og bleikur bolur...

Núverandi tími? 20:30

Núverandi skap? Bara í sæmilegu skapi...

Núverandi hár? Krullað og í fasta fléttur (s.s bed hair day..)

Núverandi pirringur? Lítill pirringur nema að mig langaði í baðið sem að Guðrún var að fara í áðan...

Núverandi lykt? Love spell - Victoria's Secret...

Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera? Vera á heftbaki en nenni ekki útaf það er rigning...

Núverandi skartgripir? Hringur, hálsmen og eyrnalokkar...

Núverandi bók? Er nú ekki mikill lestrar hestur, en les stundum draumráðningar bókina á mornanna...

Núverandi áhyggja? Lifi voða áhyggju lausu lífi...

Núverandi uppáhalds leikari? Christina Ricci.. 

Núverandi íþrótt? Hestar...

Núverandi löngun? Heitt bað, heitur pottur, daim ís, og kúra með einhverjum:)

Núverandi tónlist? Ekkert sérstakt svosem en the cranberries eða hvernig sem í fjandanum það er skrifað er ofarlega...

Núverandi ósk? Vera að dúllast með oggo ponsu lítið barn. Svo langar mér í sumar:)

Núverandi texti á heilanum? Sól inni, sól úti, sól í hjarta, sól í sinni, sól bara sól, er bara búin að vera með þetta lengi á heilanum...

Núverandi farði? Sólarpúður og maskari...

Núverandi undirföt? La Senza bleikur og svartur bra og naríur í stíl...:)

Núverandi eftirsjá? Min papa...

Núverandi desktop pic? Saman söfnuð mynd af vinum og family sem ég bjó til sjálf:)

Núverandi áætlanir fyrir kvöld/helgi? Horfa smá á TV, fara út að labba, sturta og svo lúlla mér:)

Núverandi blótyrði? Þegiðu...

Núverandi vonbrigði? Lítið um það...

Núverandi skemmtun? Bara lítið spenandi að gera...

Núverandi manneskjur sem ég er að tala við? Svona flesta, og bara þá sem hringja í mig, hringi lítið sjálf nú orðið svo mikið að gera...

Núverandi manneskja sem ég er að forðast? Forðast engan..

Núverandi hlutir á veggnum? Bara myndir...

Núverandi uppáhalds þáttur? Svo margir, grannar, OTH, OC, SEX in the city, Gray´s anatomy og fleiri...


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 17:41:41 / heidrun

Laugardagur...

5 bikarar

Hamingjubikar þinn hefur eflaust ekki fundið hið sanna jafnvægi sem á vel við þig og hentar þér. Hér kemur fram einhverskonar missir eða vonbrigði sem kann að ýta undir leiða hjá þér. Ef þú leyfir þessari líðan að ná yfirtökum á annars jákvæðri orku þinni og viðhorfi er hætta á að neikvæðar tilfinningar þínar verði þér þungbærar og magnist í huga þér og ýti þar með undir ójafnvægi sem á ekki við þig.

Þú ættir að leggja þig fram við að opna hjarta þitt fyrir því sem eflir þig á góðan máta og kasta frá þér þeim þungu byrðum sem gætu tengst þessari óánægju sem birtist.

Í hverju vandamáli felast dulbúin tækifæri.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 16:25:48 / heidrun

Þriðjudagur...

Jæja það má segja að það hafi ekki margt á daga mía drifið undanfarið... Er bara búin að vera hálf slöpp og bíllinn minn var í viðgerð þannig að ég fer hedur ekki langt... En í gær var ég bara heima að borða ís, fór út að labba til að létta á huga mínum og baðaði svo hundana:) Annars er nú komið svolítið sumar í mann þegar veðrið er svona ansi gott...

Dró síðan annað spil af því mér finnst það svo gaman...

Myntriddari

Persónuleiki
Maðurinn sem birtist hér er ekki endilega skólagenginn heldur koma kostir hans í ljós þar sem góðmennska og traust lýsa honum best. Hann nýtur einfaldleika tilverunnar. Maðurinn er jarðbundinn mjög og er oft á tíðum hægur í hugsun þar sem þörf er á þolinmæði.

Aðstæður
Ef lítið er um að vera þessa stundina hjá þér og fátt spennandi framundan að þínu mati ættir þú að taka þér tíma til að slaka á, virkja þína innri líðan og njóta kyrrðarinnar í stað þess að leita uppi verkefni. Árangur næst á endanum.

Jæja hafið það vonandi gott og allir að kommenta:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 22:34:48 / heidrun

Mánudagur...

Fór a www.spamadur.is og má segja að þetta segi allt sem segja þarf...

IX - Einbúinn

Þú hefur markvisst dregið þig frá umhverfi þínu á einhvern hátt og er það eingöngu af hinu góða ef þú ert þar með að styrkja sjálfið.

Þér gæti mislíkað það sem er að gerast í kringum þig eða þú finnur þörfina á að vera í einrúmi og huga að persónulegum þörfum og jafnvel tíma til að huga betur að eigin líðan.

Hér er talað um að þú ættir að ákveða hvað skal aðhafst án áhrifa annarra. Lausn vandans liggur innra með þér og svarið fæst fyrr en síðar. Skilaboð hjarta þíns, vellíðan og vanlíðan munu vísa þér á rétta braut.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 17:10:14 / heidrun

Sunnudagur...

Jæja þá er komin sunnudagur og langt langt síðan ég bloggði síðast... Páskarnir afstaðnir og allt...

Jæja hafði það bara sæmilegt um páskana þó mér finninst svona frí bara ekkert skemmtileg... Langar bara í sumar og sól... En um páskana var bara mikið tekið því rólega... fékk migreni á föstuaginn langa... Síðan komu páskarnir og ég fékk æðinslegan málshátt./"Ölugar og ötular sálir mega hvorki né eiga að halda kyrru fyrir meðan æskufjörið varir"/ einhvern veginn svona... en já fór svo á ball um kveldið með á móti sól og það var bara fínt, var reyndar allt of heitt þarna inni...

Nú síðan kom sumarið og óska ég öllum gleðilegs sumars og þakka líka fyrir veturinn... Nú reynar á síðast vetrardag fór ég á ball á Venus og það var upp og ofan skemmtuninn þar... Jamm þið vitið...

Jæja síðan núna á föstudaginn fór ég til Hvolsvallar með mömmu, Guðrúnu og Áslaugu... Fórum svo í brúðkaup í gær sem var allveg voða gaman:)

Fékk síðan að prufa nýja bílinn hans Guðna sem var allveg ofsa flottur... Búin að selja 320 og bara komin á flottari.. usss... Fann sko ekki fyrir hraðanum...

Fann hérna eina setningu í svona biblíu kassa og ætla að fara að skrifa alltaf eina þegar ég blogga.../"Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá"/

Annars er ég bara hálf veik núna og er bara að hangsa eins og alltaf...


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 15:51:55 / heidrun

Þriðjudagur...

Dró mér spil á www.spamadur.is

10 mynt

Fjölskylda þín og vinir tengjast spilinu sem þú varst um það bil að velja. Öryggi einkennir umhverfi ykkar og fjárhag. Þú ert hluti af fjölskyldu þessari sem aðstoðar þig í einu og öllu.
Þú gegnir vissum skyldum gagnvart fólkinu. Hér er um gagnkvæma ást og virðingu að ræða. Uppeldi þitt hefur vissulega mótað þig sem manneskju í atferli og háttum á jákvæðan hátt. Bakgrunnur þinn eflir sjálfstraust þitt.

En annars allt gott að frétta.. Staðan 1:1 í úrslitarimmu Skallagríms og Njarðvíkur... Allir að mæta á næsta leik á laugardaginn í "´Ljónagrifjunni"...


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20